Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Sólrún Ţórđardóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Broadway og Galup
  • Hjúskaparstađa: Á föstu
  • Um mig: Ég er 18 ára, ljóshćrđ og ţessi týpíska ljóska, get samt komiđ međ gáfuleg komment inn á milli :).. áhugamálin mín eru yndislegu hestanir mínir, tónlist og elsku vinir mínir og kćrasti :)

Innskráningar kubbur

vor prófin

23. apríl 2008 klukkan 16:39
það er nokkuð langt síðan ég bloggaði seinast.. enda hefur ekkert spses gerst.. ég er bara búin að vera í skólanum, ég er vonandi á næst seinustu önninni minni og það er voða góð tilfinning.. ég er kominn með svo mikinn skólaleiða að það er ekki eðlilegt..  en ég ætla að skrifa smá útdrátt frá þeim mánuðum sem eitthvað hefur gerst..

Janúar: byrjaði enn eina önnina í Fá,  hélt uppá  áramóin með vinum og fjölskyldu voða gaman þá :). Fékk vinnu á Broadway, það er allveg ágætis vinna..
Febrúar: Vann bara og var í skóla.
Mars: Skóli og vinna, svo náttla páskafrí :) jeijj
Apríl: Ennþá meiri skóli og vann smá, er núna að vinna í galúp og kisa vinkonu minnar týndist í byrjun mánaðarins og er ekki ennþá fundin:( sem er ekki gaman. heirru jú ég fór í partý og það var mjög gaman.. Var bara búin að borða 2 ristabrauðsneiðar og var sem sagt annsi skrautleg.. :) ég veit allavegana að ég var í þessu partýji.. man samt ekki allveg allt úr því, var þarna einhversstaðar dettandi og labbandi með fram veggjum svo ég myndi ekki detta.. :) voða gaman.. enda endaði ég með feitan marblett á lærinu og illt í puttanum daginn eftir og mjög mjög þunn.. þennan fimmtudag þá tók ég út djammið fyrir heila helgi..  Núna fara prófin að byrja og ég er svo feitt með prófkvíða að það er ekki eðlilegt.. vona samt að ég nái flestum.. veit að ég næ ekki ísl.. en það er í lagi.. :) annars þá er ég að fara út í sumar til ibiza og rhodosar.. sem verður geggjað.. í fyrri ferðinni verð ég í 10 daga og hinni í 2 vikur.. og svo vinn ég þar á milli og svo byrjar skólinn um haustið og þá verður þetta seinasta önnin.. :) Sunna vinkona mín er einnig að fara vinna heima hjá foreldrum mínum svo að það verður ennnþá meira stuð..
En ég nenni ekki að skrifa eikkað meira.. ég ætla að reyna að halda þessari síður gangandi í sumar..
kveðja sólrún

Jólin Jólin

26. desember 2007 klukkan 01:03
Jæja núna eru jólin gengin í garð. Það er allt hvítt hérna fyir vestan. ég kom á laugardaginn hingað vestu með silju, kærasta hennar jóhanni og helgu litlu systur minni.. svo tók ég kisuna sem ég er að passa með.. við fórum sem sagt í band brjáluðu veðri heim vestur með fullan bíl af pökkum og mat.. :D en já.. svo komum við heim og þegar ég hleypti kisu út þá komu hinir tveir kettirnir mínir og kvæstu á hana.. það var ekki gott.. en núna er kisa og brandur sem er yngri kötturinn búinn að sættast og leika sér en eldri kötturinn kvæsir á allt og alla núna..
svo á þorláksmessu þá vaknaði ég seint.. en ég fór inní staðarsveit og sótti kartöfulur og fór svo aftur heim og gerði jólakort og borðaði saltfisk í kvöld mat.. :S en hann var ágætur.. en já.. svo gerði ég fleiri jólakort og fór svo að sofa..
á aðfangadag þá vaknaði ég og horfði á teiknimyndir með helgu og hjálpaði við að gera matinn.. svo borðaði ég yndislegan mat og svo opnuðum við jólapakkana..  ég fékk rosalega krúttlegar og flottar gjafir og þakka mjög fyrir þær :D svo var ég eikkað að spjalla og horfði á kínverska teiknimynd með fjölskyldunni og fór svo að sofa..
í dag vaknaði ég og fékk hangikjöt og eikkað soleiðis.. og fór svo út og gerði snjókall með helgu, silju og jóhanni.. það var mjög gaman.. gerðum mjög stóra snjókalla... enda var snjórinn mjög mikill og mjög hentugur.. svo á morgun þá gæti verið að ég fari suður en er samt ekki viss.. það kemur bara allt í ljós.. þarf samt að fá far með einhverjum útaf kisu.. get ekki farið í rútu með hana.. annars er ekkert meira búið að gerast.. :D sakna ykkar í rvk og þín hófi..

kveðja Sólrún ofurmassi

Prófin búin

19. desember 2007 klukkan 16:37
Jæja núna er ég loksins búin í prófunum og loksins búin að fá úr þeim líka.. mér semsagt tókst á ná ágætis einkunnum og ég segi ekki meira um það.. en allavegana þá bara gekk mér vel.. og núna fer ég að fara heim í sveitina loksins.. en vandamálið er að ég á eftir að kaupa jólagjöf handa 3 og klára að skrifa dvd myndir.. ææ...en já.. ég er að passa litla kisu og hún er allgjört krútt.. við erum að tala um það að hún sat á bakinu mínu þegar ég var að setja sand í kattarkassan hennar.. allgjört krútt..
Nú nálgast jólin rosalega hratt og ég er ekki einu sinni komin í jólastuð.. er ekki búin að hlusta á jólalög né baka.. ussuss hvernig er þetta með mig.. en ég vona að það komi á næstu dögum svo að ég verði ekki allveg dauð á jólunum.. :)

Sólrún ofurmassi kveður.. ;)

P.S. Sakna þín rosa mikið Hófí mín og vonandi ertu að skemmta þér vel fyrir austan.. :*

Nýtt blogg

19. desember 2007 klukkan 00:48

Jæja núna er ég komin með enn nýtt bloggið.. En ég vona að ég verði duglegri með þetta blogg en hitt.. og svo verðið þið að vera dugleg að comenta.. :) svo að þetta kemur smátt saman.. verð að vinna í þessu um jólin og í jólafríinu.. :)
Sólrún ofurmassi kveður

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Atburđarteljari

Klukkan

Könnun

Í hversu miklu jólaskapi ert ţú í?

Gagnasafn